Gæðastefna
- Hjúkrunarstjóri gæða- og fræðslumála ber ábyrgð á gæða og fræðslustarfi heimilanna.
- Stefnt er að breiðri þekkingu og reynslu starfsmanna af starfi með öldruðum.
- Stefnt er að því að starfsmenn í umönnun hafi að jafnaði lokið fagnámskeiði 1 og 2 eftir 12 mánuði í starfi.
- Fræðslunefnd starfar við öll heimilin.
- Fræðsla í boði á öllum heimilinum og starfsmenn jafnframt hvattir til að sækja sér fræðslu utan heimilanna.
- Verklagsreglur og vinnuleiðbeiningar eru aðgengilegar á sameignarsvæðum innan tölvukerfanna.
- Gæðavísar RAI mats eru notaðir til grundvallar gæðastarfsemi heimilanna.
- Þverfaglega gæðanefnd skipuð fulltrúum frá öllum þremur heimilinum fer yfir niðurstöður gæðavísa RAI mats að loknu RAI tímabili og skipar í teymi sem taka fyrir sérstök gæðaverkefni.
- Viðhorfs og þjónustukannanir lagðar fyrir árlega og niðurstöður nýttar í gæðastarfi