Heit eggjakaka í morgunmat

Stundum er gott að bregða út af vananum og það er einmitt það sem gert var í eldhúsinu á Litlu Grund fyrir síðustu helgi. Þá ákvað starfsfólkið  að skella í eggjaköku og bjóða með hafragrautnum og því venjulega sem er á boðstólum á morgnana. Það var almenn ánægja með tilbreytinguna.