Góður gestur í heimsókn

Stundum koma ferfætlingar í heimsókn á Grund og hún Fanney iðjuþjálfi tók tíkina sína Mýru með í vinnuna nýlega. Heimilisfólkið var yfir sig hrifið og móttökurnar eftir því. Það klappaði henni og knúsaði og svo fékk hún meira að segja volgan prjónapúða á mallakútinn sinn. 🐕
Næst þegar hún kemur í heimsókn og nálgast Grundina hér á Hringbraut hlýtur hún að dilla skottinu fáránlega hratt af gleð og tilhlökkun.