Ólafur Sveinberg, heimilismaður á 2. hæð í Mörk, er með sýningu á verkum sínum og er þegar búinn að selja fjögur verk af fjórtán.
Sýningin, er í tengigangi Markar milli hjúkrunarheimilis og heilsulindarinnar en gangurinn tengir einnig íbúðabyggingarnar við Suðurlandsbraut 58 til 62 og hjúkrunarheimilið.
Hafliði Hjartarson, sem er íbúi hjá Íbúðum 60+ og situr í stjórn íbúaráðs, sá um að setja upp sýningua með listamanninum.