Fréttir

Öskudagsgleði

Heimilismenn ásamt starfsmönnum Markar slógu köttinn úr tunnunni og skemmtu sér stórkostlega. Eins og sjá má á myndum var enginn lognmolla yfir fólki og vel tekið á því. Að launum fengu allir glaðning.

Óþarfa áhyggjur af hagnaði

Á dögunum auglýstu Sjúkratryggingar Íslands eftir áhugasömum aðilum til að reka fimm hjúkrunarheimili. Hlíð og Lögmannshlíð á Akureyri, Uppsali á Fáskrúðsfirði, Hulduhlíð á Eskifirði og Hraunbúðir í Vestmannaeyjum. Þessi heimili eiga það sameiginlegt að sveitarstjórnirnar sem hafa staðið að rekstri þeirra hafa gefist upp. Gefist upp á endalausum taprekstri undanfarinna ára og hafa ákveðið að hætta að greiða með rekstri þeirra. Enda er rekstur hjúkrunarheimila á ábyrgð ríkisins samkvæmt lögum, ekki sveitarfélaga. Nú er það svo að rekstur nær allra hjúkrunarheimila landsins hefur verið erfiður undanfarin ár og ekki bætti covid 19 úr skák. Aukinn kostnaður vegna faraldursins og minnkaðar tekjur sumra hjúkrunarheimila hefur gert vonda stöðu enn verri. Staða sveitarfélagaheimilanna, ef þannig má að orði komast, er enn verri en þeirra sem eru rekin sem sjálfseignarstofnanir, þar sem launakostnaður þeirra er hærri að meðaltali en sjálfseignarstofnananna. Í auglýsingunni segir: „Æskilegt er að rekstraraðilar séu reknir á grundvelli fyrirkomulags um sjálfseignarstofnanir eða þar sem hagnaður er endurfjárfestur í þágu starfseminnar.“ Göfugt og skynsamlegt markmið. En ekki líklegt að á þetta reyni. Samanlagður hallarekstur þessara heimila undanfarin þrjú ár nemur rúmlega 1.450 milljónum króna. Tæpum einum og hálfum milljarði. Það er talsvert í að þau komi til með að skila hagnaði, held barasta alveg sama hver rekstraraðilinn verður. Stjórnendur SÍ ættu því að geta sofið rólegir þó að það komi að þessu einhver aðili sem uppfyllir ekki framangreint markmið. Áhyggjur af því að væntur hagnaður fari út úr rekstrinum eru að mínu mati óþarfar. Áhugavert verður að fylgjast með rekstri Skjólgarðs, hjúkrunarheimilinu á Höfn í Hornafirði en sveitarfélagið hefur ákveðið að skila rekstri þess einnig til ríkisins. Forstjóri SÍ tilkynnti á dögunum að búið væri að semja um rekstur þess við ótilgreindan aðila, sem er reyndar ekki einkaaðili, heldur ríkisheimili sem SÍ fékk til verkefnisins. Ég hef áður bent á að Skjólgarður greiðir húsaleigu í beinhörðum peningum til Ríkiseigna vegna þess húsnæðis sem hjúkrunarheimilið er rekið í. Engar tekjur koma frá SÍ til greiðslna þeirra tæpu 20 milljóna sem renna þannig út úr rekstri Skjólgarðs til Ríkiseigna. Geri frekar ráð fyrir því að nýr rekstraraðili komi til með að þurfa að greiða þessar húsaleigugreiðslur áfram til Ríkiseigna. Og fái þá til þess auknar tekjur frá SÍ til þeirra greiðslna, nú eða samið verði um að hætta þeim greiðslum. Að halda áfram óbreyttum húsaleigugreiðslum án aukinna tekna er líklega ávísun á áframhaldandi taprekstur. Hvaða leið sem verður farin í þessum húsaleigumálum Skjólgarðs, þá mun ég fylgjast með af áhuga og sýnist að það stefni í einhvers konar nýjungar og stefnubreytingar hjá ríkinu í þeim efnum. Kveðja og góða helgi, Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna

Bollukaffi í góðum selskap

Á bolludaginn hittust nokkrar heimiliskonur í vinnustofunni hjá Þórhöllu, sr. Auði Ingu og Valdísi, gæddu sér á nýbökuðum bollum, kaffisopa og sérrí og ræddu lífsins gang og nauðsynjar eins og gerist ávallt í góðra kvenna hópi. Notaleg stund í skemmtilegum félagsskap.

Bólusetning starfsmanna

Þessa dagana er að hefjast bólusetning allra starfsmanna Grundarheimilanna. Ánægjulegt í alla staði og ber að þakka fyrir af heilum hug. Bóluefnið mun hafa fulla virkni þegar seinni sprautan er gefin í maí mánuði en virknin er eftir fyrstu sprautu engu að síður um það bil 70%. Þessi bólusetningarhrina innifelur í sér eins og áður segir, alla starfsmenn heimilanna þriggja sem eru fæddir frá 1957 – 2002. Eldri en 65 ára fá annað bóluefni síðar og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins áttaði sig ekki á því að yngri en fæddir 2002 væru í vinnu hjá okkur, og þeir fá því heldur ekki boð um bólusetningu. Það verður vonandi fljótlega. Við stjórnendur Grundarheimilanna mælum eindregið með því að allir fari í bólusetningu og hjálpist þannig að við útrýmingu veirunnar í okkar góða samfélagi. Ef einhver getur ekki eða kýs að fara ekki í bólusetningu (enginn skyldaður í það) þá er viðkomandi beðinn um að nota andlitsgrímu þangað til að faraldurinn verður yfirstaðinn, sem verður vonandi í byrjun næsta vetrar, ef til vill síðar. Ef einhver starfsmaður efast um að hann megi, þá oftast vegna einhverra heilsutengdra mála, fara í bólusetningu þá er eðlilegast að ræða það við starfsmenn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, þau vita allt um málið. Það gæti misskilist ef ég, allsendis ómenntaður maðurinn í heilbrigðisfræðum, færi að úttala mig um það allt saman. Ítreka þakkir mínar til þeirra sem stjórna þessum málaflokki og aðgerðum þeirra við útvegun á bóluefni sem mér sýnist geta leitt til þess að sumarið verði okkur barasta nokkuð hagstætt. Kveðja og góða helgi, Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna

Neyðarkallasala á nýjum tíma

Næst mikilvægasta fjáröflun björgunarsveita og slysavarnarfélaga landsins fer fram í dag og um helgina. Neyðarkallasalan. Hún hefur hingað til verið fyrstu helgina í nóvember en vegna covid 19 var henni frestað fram í febrúar. Við seldum þó stóra kallinn til fyrirtækja í nóvember sl., enda krefst sú sala ekki nálægðar og því smithætta afar lítil. Sú sala gekk vel og vonandi verður okkur vel tekið nú um helgina. Flugeldasalan um síðastliðin áramót gekk einnig vel en líkur eru á því að á næstu árum muni eitthvað draga úr henni. Skiljanleg umhverfissjónarmið skýra það. Það er því áskorun til okkar í björgunarsveitunum og vonandi kemur ríkisvaldið að því með opnum hug, að finna aðrar leiðir til að standa undir því mikilvæga starfi sem björgunarsveitir landsins sinna ár hvert. Við í Hveragerði förum í um það bil 50 útköll á ári, eitt á viku. Sækja slasaða ferðamenn upp í Reykjadal, loka Hellisheiðinni og stundum að bjarga fólki af heiðinni, leitum að týndum einstaklingum og margt fleira. Í sveitinni okkar er góður kjarni af áhugasömu og duglegu fólki sem er tilbúið að stökkva til um leið og neyðarkallið kemur. Í sjálfboðnu starfi þar sem enginn fær greitt fyrir þátttöku. Tel að þetta myndi kosta samfélagið (ríki og sveitafélög) ansi marga milljarða króna á ári ef ekki kæmi til þessi góði áhugi þessara einstaklinga. Ég verð sjálfur í verslunarmiðstöðinni (mollinu okkar) í Hveragerði í dag eftir hádegið og nýt aðstoðar okkar góða bæjarstjóra, Aldísar, sem hefur lagt okkur gott lið í þessu mikilvæga verkefni. Sjáumst kannski þar. Ef einhvern vantar Neyðarkall, get ég auðvitað líka póstlagt þá til viðkomandi gegn millifærslu 😊 Kveðja og góða helgi, Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna og gjaldkeri Hjálparsveitar skáta í Hveragerði

Út í stilluna

Þegar veðrið er stillt er um að gera að anda að sér fersku lofti. Og það gera heimilismenn og starfsfólk í Ási þegar hægt er. Þá kemur nú þessi rauði fíni fararskjóti sér vel.

Ilmurinn er svo lokkandi

Þegar ilmurinn af nýbökuðum vöfflum læðist um gangana á Grund lifnar yfir öllum. Heimilisfólkið á V-2 kunni svo sannarlega að meta það í gær þegar hún sr. Auður Inga mætti með vöfflujárnið og deigið og bakaði með kaffinu.

Kæru aðstandendur

kynnið ykkur vel þær breytingar sem hér fara á eftir. Nú erum við að fóta okkur í nýju og breyttu landslagi eftir að heimilismenn eru flestir bólusettir. Við þurfum þó áfram að stíga varlega til jarðar. Breytingar á sóttvarnarreglum frá 30. janúar 2021 Nú eru langflestir heimilismenn orðnir bólusettir við Covid 19. Það er þó mikilvægt að minna á það að bólusetning er ekki 100% vörn gegn sjúkdómnum. Áfram verða heimilismenn að gæta að persónubundnum sóttvörnum. Við getum hins vegar létt á ýmsum aðgerðum sem við höfum farið í hér í Ási og hafa haft það að markmiði að hindra að hópsmit breyddist úr meðal heimilismanna. Starfsfólk hefur ekki verið bólusett og þess vegna þarf áfram að gæta að sóttvörnum meðal þeirra. 1. Heimsóknir Gestir eru velkomnir í heimsókn. Þeir þurfa að vera með maska við komu, spritta hendur og fara beint á herbergi heimilismanna, ekki dvelja í sameiginlegum rýmum. Við miðum þó við að aðeins tveir megi heimsækja hvern og einn í einu til þess að koma í veg fyrir að of margir séu samankomnir á heimilinu í einu (börn fædd 2005 eða seinna undanskilin). Opið er fyrir heimsóknir frá klukkan 13-18 alla daga. Heimilismenn mega fara í heimsóknir til ættingja en verða að gæta að almennum sóttvörnum og spritta hendur við komu á heimilið aftur. 2. Matsalir Hólfaskipting heimilismanna í matsal hættir, heimilismenn og starfsmenn halda áfram að spritta sig áður en komið er inn í matsal. 3. Dagdvöl Opnum dagdvöl 1.febrúar, notendur þjónustunnar eru ekki allir fullbólusettir en hafa val um hvort þeir vilja mæta strax eða bíða þar til þeir eru bólusetningu er lokið. 4. Verslun Opnum verslun 1.febrúar, viðskiptavinir spritta sig áður en þeir fara inn í verslun og það er bara einn inni í einu. 5. Vinnustofur Óbreytt fyrirkomulag verður í vinnustofum, við opnum ekki á milli sóttvarnarhólfa svo sama skipting verður áfram. 6. Sjúkraþjálfun Hættum skiptingu heimilismanna á milli sóttvarnarhólfa í sjúkraþjálfun en pössum vel að forðast blöndun starfsmanna. 7. Ferðir heimilismanna út í bæ Við hvetjum heimilismenn ekki endilega til bæjarferða en ef fólk vill fara í verslanir eða heimsóknir út í bæ skal það gæta að almennum sóttvörnum og spritta sig við komuna til baka. 8. Maskanotkun Starfsmenn þurfa áfram að nota maska þegar ekki er hægt að gæta að 2ja metra reglu milli starfsmanna. Heimilismenn þurfa að nota maska í samræmi við sóttvarnarreglur þegar þeir fara af heimilinu. Birna Sif

Kæru aðstandendur

Breytingar á sóttvarnarreglum 29. janúar 2021 Nú eru langflestir heimilismenn orðnir bólusettir við Covid 19. Það er þó mikilvægt að minna á það að bólusetning er ekki 100% vörn gegn sjúkdómnum. Áfram verða heimilismenn að gæta að persónubundnum sóttvörnum. Við getum hins vegar létt á ýmsum aðgerðum sem við höfum farið í hér á hjúkrunarheimilinu og hafa haft það að markmiði að hindra að hópsmit breyddist úr meðal heimilismanna. Starfsfólk hefur ekki verið bólusett og þess vegna þarf áfram að gæta að sóttvörnum meðal þeirra. 1. Heimsóknir Gestir eru velkomnir í heimsókn. Þeir þurfa að vera með maska við komu, spritta hendur og fara beint á herbergi heimilismanna, ekki dvelja í sameiginlegum rýmum. Við miðum þó við að aðeins tveir megi heimsækja hvern og einn í einu til þess að koma í veg fyrir að of margir séu samankomnir í rýminu (börn fædd 2005 eða seinna undanskilin). Opið er fyrir heimsóknir frá klukkan 13-18 alla daga. Heimilismenn mega fara í heimsóknir til ættingja eða bíltúra en verða að gæta að almennum sóttvörnum og spritta hendur við komu á heimilið aftur. 2. Maskanotkun Starfsmenn þurfa áfram að nota maska þegar ekki er hægt að gæta að 2ja metra reglunni milli starfsmanna. Heimilismenn þurfa að nota maska í samræmi við sóttvarnarreglur þegar þeir fara af heimilnu. 3. Kaffi Mörk Vegna almennra fjöldatakmarkana í samfélaginu þá verður Kaffi Mörk áfram lokað fyrir heimilismenn hjúkrunarheimilisins og aðstandendur þeirra. Áfram er mikilvægt að hafa í huga að gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir: • Eru í sóttkví eða bíða eftir niðurstöðum úr sýnatöku • Eru með einhver einkenni eins og kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, kviðverki eða niðurgang Fyrir hönd viðbragðsteymis Grundarheimilanna Sigríður Sigurðardóttir

Kæru aðstandendur

Að loknum fundi með embætti Sóttvarnarlæknis sem var nú eftir hádegi taka nýjar reglur gildi á Grund frá og með deginum í dag. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir alla. Nú eru langflestir heimilismenn orðnir bólusettir við Covid 19. Það er þó mikilvægt að minna á það að bólusetning er ekki 100% vörn gegn sjúkdómnum. Áfram verða heimilismenn að gæta að persónubundnum sóttvörnum. Við getum hins vegar létt á ýmsum aðgerðum sem við höfum farið í hér á hjúkrunarheimilinu og hafa haft það að markmiði að hindra að hópsmit breyddist úr meðal heimilismanna. Starfsfólk hefur ekki verið bólusett og þess vegna þarf áfram að gæta að sóttvörnum meðal þeirra. 1. Heimsóknir Gestir eru velkomnir í heimsókn, ekki þarf að panta tíma. Gestir þurfa að vera með maska við komu, spritta hendur og fara beint á herbergi heimilismanna, ekki dvelja í sameiginlegum rýmum. Við miðum þó við að aðeins tveir megi heimsækja hvern og einn í einu, einu sinni á dag (börn fædd 2005 eða seinna undanskilin). Opið er fyrir heimsóknir frá klukkan 13-18 alla daga. Ekki er leyfilegt að staldra við og tala við starfsfólk á göngunum, eftir sem áður skal hringt í okkur ef ykkur vantar upplýsingar. Heimilismenn mega fara í heimsóknir til ættingja eða bíltúra en verða að gæta að almennum sóttvörnum og spritta hendur við komu á heimilið aftur. Þeir heimilismenn sem ekki eru fullbólusettir, þ.e. þeir sem hafa ekki fengið síðari sprautuna þurfa að halda sig heima við í bili. 2. Maskanotkun Starfsmenn þurfa áfram að nota maska þegar ekki er hægt að gæta að 2ja metra reglunni milli starfsmanna. Heimilismenn þurfa að nota maska í samræmi við sóttvarnarreglur þegar þeir fara af heimilnu. Heimsóknargestir þurfa að vera með maska. Áfram er mikilvægt að hafa í huga að gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir: • Eru í sóttkví eða bíða eftir niðurstöðum úr sýnatöku • Eru með einhver einkenni eins og kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, kviðverki eða niðurgang • Hafa dvalið erlendis og ekki eru liðnir 14 dagar frá heimkomu. • Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift. Njótið helgarinnar með ykkar ástvinum Mússa