Gáfu Grund rafknúna göngugrind

Jóhann Árnason kom á dögunum færandi hendi á Grund fyrir hönd Oddfellowstúkunnar Þorkels Mána með háa rafknúna göngugrind. Slíkt hjálpartæki mun koma sér afskaplega vel og er stúkunni hjartanlega þakkað fyrir þessa rausnarlegu gjöf og Jóhanni fyrir komuna. Hér tekur Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundarheimilanna við þessari góðu gjöf frá Jóhanni Árnasyni.