"Það er búið að eyða púðri í skreytingar og við erum með pikköplínur hérna til að hjálpa unga fólkinu að ná sér í maka, þetta er bara Tinder og Smitten. Svo er boðið upp á óáfenga sangríu. Þetta er bara gleði og fjör hjá okkur í dag.“ sagðiTheodóra Hauksdóttir, framkvæmdarstjóri hjúkrunar í Mörk þegar Morgunblaðið mætti til að taka myndir og fylgjast með diskóinu. Það var semsagt diskótek í Mörk í gær, lagalistinn með Abba og BeeGees, diskókúla í loftinu, boðið upp á óáfenga Sangríu og allir með glimmer og glansandi. Mikið fjör.