Verslunin flutt að nýja kaffihúsinu

Verslun Grundar hefur nú verið flutt að nýja kaffihúsinu og er hún opin alla virka daga frá klukkan 12.30-15.30 eða þar til kaffihúsið verður opnað.
Kaffihúsið er í raun tilbúið en þessar vikurnar standa yfir leyfisveitingar og lokaúttektir og er beðið eftir að öll tilskilin leyfi séu komin. Vonandi á næstu vikum.
Það ríkir mikil eftirvænting meðal allra hér í húsinu og aðstandendur hafa einnig sýnt kaffihúsinu áhuga svo það verður gaman þegar loksins verður hægt að opna dyrnar fyrir kaffihúsagestum.
Á meðfylgjandi mynd er fyrsti viðskiptavinurinn, starfsmaðurinn Rúnar, að kaupa sér orkudrykk hjá henni Rut í nýja verslunarhúsnæðinu.