Kæru aðstandendur Grundar

Veiran minnir á sig þessa dagana og viljum við því skerpa aðeins á reglum hjá okkur.

Allir gestir eru beðnir um:

  1. Að spritta sig við komu í hús
  2. að bera grímu á leið inn og útúr húsi
  3. að dvelja eingöngu á herbergi heimilismanns á meðan á heimsókn stendur
  4. að staldra ekki við á göngum og tala við starfsfólk heldur hringja í okkur
  5. að dvelja ekki í sameiginlegum rýmum

Við biðjum gesti að koma ekki í heimsókn ef þeir:

Eru í sóttkví eða smitgát.

Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).

Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.

Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang).

Hafa dvalið erlendis undanfarna daga og eru ekki komnir með neikvæða niðurstöðu úr skimun eftir komuna til landsins.  Þetta á við um bólusetta gesti, óbólusettir þurfa að gangast undir tvöfalda skimun og sóttkví einsog reglur á landamærum segja til um.

Með kærri þökk fyrir skilningsríkt og ánægjulegt samstarf

Mússa