Á Grundarheimilunum er stefnan að aðlaga þjónustu að hverjum og einum. Markmiðið er að taka tillit til getu hvers og eins og styðja hann þar sem upp á vantar. Of oft gleymum við okkur og tökum fram fyrir hendur heimilismannsins afþví við erum að flýta okkur. Hraðinn er oft mikill og við gefum okkur ekki tíma.
Ég hef áður fjallað um virðingu og að hafa hlutverk sem skiptir miklu máli. Hvernig myndum við vilja hafa hlutina ef við værum í þeirri stöðu að
þurfa svona persónulega þjónustu? Leiðarljósið í okkar vinnu er Eden hugmyndafræðin. Tvö heimila okkar hafa í töluverðan tíma starfað eftir þessari hugmyndafræði, Ás og Mörk og fengið viðurkennda vottun þar að lútandi. Á Grund hefur lengi verið starfað í þessum anda og leiðarljósin höfð til hliðsjónar.
Nýlega var sú ákvörðun tekin að fá vottun fyrir Grund. Engar stórvægilegar breytingar þarf að gera í starfseminni. Við höldum bara áfram að gera það sem að við höfum verið að gera þar, þ.e. að veita okkar heimilisfólki alúð og umhyggju, með það í huga hvað við sjálf myndum kjósa ef við værum í þessum sporum. Til að uppfylla formkröfur fyrir vottun er nauðsynlegt að stór hluti starfsmanna og stjórnenda fari á sérstök Eden námskeið, en þau verða haldin eftir áramót. Starfsmenn Markar og Áss sem að ekki hafa farið á slík námskeið gefst einnig kostur á að fara á námskeiðin á þeim tíma. Eden námskeiðin eru ekki aðeins fyrir starfsfólk í umönnun heldur eru allir starfsmenn sem að vinna í umhverfi heimilismanna hvattir til að fara á námskeið, hvort sem þeir sinna heimilismönnum beint eða óbeint.
Lykillinn að því að geta veitt þessa persónumiðuðu þjónustu er að starfsfólk hafi tök á að kynnast heimilisfólkinu. Oft þegar fólk flytur til okkar hefur það misst færni í að tjá sig og segja frá sjálft hvað skipti þann einstakling máli, hvaðan hann kemur og hvað veitir honum ánægju. Lífssagan kemur þar sterk inn þar sem sagt er í myndum og texta frá þeim einstaklingi sem að býr hjá okkur.
Lífssöguna má útfæra á mismunandi máta en á facebook síðum heimilanna má sjá nýlega frétt þar sem nokkrir stjórnenda Grundarheimilanna komu saman og bjuggu til sína lífssögu á mjög stuttum tíma. Þetta var skemmtilegt, að útbúa eigin lífssögu með það í huga að kynna hvað skiptir mann máli. Lífssögurnar voru eins ólíkar og þær voru margar.
Ég vil því hvetja alla aðstandendur til að kynna sér lífssöguna en hún getur verið í allskonar formi. Við komum til með að bjóða aðstandendum og heimilisfólki á næstunni upp á samverustundir þar sem hægt verður að gera lífssöguna en einnig er hægt að fá frekari upplýsingar hjá deildarstjórum heimilanna.
Persónumiðuð þjónusta, með Eden hugmyndafræðina að leiðarljósi er ákvörðun. Eden hugmyndafræði er ekki trúarbrögð eða bókstafur sem verður í einu og öllu að fylgja. Svo lengi sem grunnur Eden stefnunar er ríkjandi í menningunni og við minnum okkur á gildin í daglegum aðstæðum þá erum við á góðri leið. Öll okkar heimili hafa þetta Eden „hjarta“ , en við þurfum alltaf að vera á tánum og meta hvort við séum á réttri leið.
Við höldum áfram okkar vinnu með þetta í huga og öll okkar heimili verða komin með formlega Eden vottun í vor.
Kveðja og góða helgi
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna
p.s. fyrir þá sem að vilja kynna sér Eden hugmyndafræðina betur er bent á heimasíðu Eden Ísland hér fyrir neðan.