Sæl kæru aðstandendur

Síðustu starfsmenn Grundar fengu sína fyrri bólusetningu á föstudag og búið er að fullbólusetja flesta heimilismenn.  Seinni bólusetningu með Astra Zenica sem stærsti hluti starfsmanna fékk (á aldrinum 18-65ára) er að vænta í maí.  Þar til búið er að fullbólusetja starfsmenn þurfum við áfram að gæta vel að sóttvörnum.  Embætti landlæknis hefur gefið út nýjar leiðbeiningar til hjúkrunarheimila og taka reglur og heimsóknartakmarkanir mið af þeim.  

Eftir 15/3 getum við sem hér búum og störfum og erum bólusett, farið á milli sóttvarnahólfa og þá gerum við ráð fyrir að félagslífið hjá okkur taki við sér. 

Við biðjum aðstandendur áfram að virða takmarkanir og halda sig við heimsóknir á herbergjum og að gestir fari ekki á milli sóttvarnahólfa.

Heimsóknir

Gestir eru velkomnir í heimsókn

Við miðum við að aðeins tveir megi heimsækja hvern og einn í einu til þess að koma í veg fyrir að of margir séu samankomnir í rýminu (börn fædd 2005 eða seinna undanskilin).

Húsið er opið fyrir heimsóknir frá klukkan 13-18 alla daga

Gestir þurfa að vera með maska við komu og spritta hendur

Gestir fara beint á herbergi heimilismanna og dvelja ekki í sameiginlegum rýmum

Gestir muna tveggja metra nándarmörk

Heimilismenn mega fara í heimsóknir til ættingja eða bíltúra en verða að gæta að almennum sóttvörnum og spritta hendur við komu á heimilið aftur.

Maskanotkun

Starfsfólk sem fengið hefur fyrri bólusetningu getur hætt að vera með maska við vinnu sína og þurfa almennt ekki að vera með maska innan veggja heimilisins eftir 15/3. 

Við förum áfram gætilega og auðvitað geta komið tilvik þar sem setja þarf upp maska til dæmis ef ekki er hægt að virða tveggja metra reglu við aðstandendur, gesti eða aðra sem ekki eru bólusettir.

Heimilismenn þurfa að nota maska í samræmi við sóttvarnarreglur þegar þeir fara af heimilnu.

Áfram er mikilvægt að hafa í huga að gestir mega ekki koma í heimsókn ef þeir:

Eru í sóttkví eða bíða eftir niðurstöðum úr sýnatöku

Eru með einhver einkenni eins og kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, kviðverki eða niðurgang

 

Það er heldur betur farið að birta og vorið á næsta leiti.  Nú er lag að koma í heimsókn og fara í göngutúr með ykkar nánustu.  Þið getið alltaf fengið lánaða hjólastóla hjá okkur.

Mússa