Þvílíkur dásemdardagur í Mörk.
Héldum sumarhátið í bongóblíðu. Fengum frábæra listamenn til liðs við okkur. Stúlknabandið Tónafljóð söng sígildu gömlu dægurlögin, ungviðið lék sér í hoppukastala og fékk blöðru hjá Daníel blaðrara og síðan var Ingunn með andlitsmálningu fyrir þá sem vildu.
Boðið var upp á melónur, sætindi, flatkökur, gos og sumarlegar veitingar.
Þökkum öllum fyrir komuna, heimilisfólkið okkar alsælt með daginn, starfsfólkið líka og frábært að fá
aðstandendur í heimsókn og öll börnin. Takk fyrir frábæran dag og fyrir komuna