Fréttir

Bíókvöld tvisvar í mánuði

Í Ási er bíóstjóri, Eðvarð Guðmannsson eða Eddi bílstjóri sem hefur undanfarin ár verið með bíósýningar tvisvar í mánuði og sýnt myndir sem heimilsmenn óska eftir að fá að sjá. Í fyrrakvöld var sýnd myndin Red Heat. Eldhúsið býður alltaf upp á snakk og gos og þetta vekur alltaf mikla lukku, þó svo mætingin sé misjöfn eftir þeirri mynd sem verið er að sýna. Guðrún Lilja átti leið um og smellti mynd af strákunum.

VÍS gaf Grund tónleika í afmælisgjöf

Hljómsveitin GÓSS mætti á Grund í gær og hélt hátíðatónleika, tók jólalög í bland við önnur falleg lög. Tónleikarnir eru gjöf frá VÍS til Grundar í tilefni 100 ára afmælis heimilisins sem var þann 29. október síðastliðinn. Hljómsveitina skipa Guðmundur Óskar Guðmundsson, Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðundsson

Aðventan undirbúin

Í síðustu viku tók heimilisfólk og starfsfólk sig til og útbjó aðventukransa fyrir Ás. Þetta er árlegur siður sem beðið er eftir með tilhlökkun. Útkoman var glæsilega eins og við var að búast.

Frá hugsjón til heillaríks starfs í heila öld

Lokapunkturinn á vel heppnuðu aldarafmæli Grundar verður settur yfir i – ið næstkomandi sunnudagskvöld. Kl. 20.15 verður sýnd á RÚV heimildamynd um aðdragandann að stofnun Grundar og starf Grundarheimilanna í Reykjavík og Hveragerði í heila öld. Stjórn Grundar ákvað snemma á síðasta ári að fá Jón Þór Hannesson til að gera framangreinda heimildamynd í tilefni af afmælinu og semja við RÚV um sýningu hennar. Afraksturinn kemur fyrir augu landsmanna strax á eftir Landanum og eflaust verða margir við viðtækin. Jón Þór er mikill reynslubolti í gerð heimildamynda og vann lengi hjá Saga film en hann var einn af stofnendum og starfsmönnum þess góða fyrirtækis. Myndin byggir að hluta til á 100 ára sögu Grundar sem var gefin út í tilefni afmælisins en þar að auki eru viðtöl við fjölmarga einstaklinga, bæði sem vinna á Grund, búa á Grund eða tengjast Grund með ýmiskonar hætti. Ég ákvað strax í upphafi að skipta mér ekkert af gerð myndarinnar og fela Jóni Þór alfarið að sjá um gerð hennar. Og er afar ánægður með þá ákvörðun mína og sé að hún var hárrétt. Maður er sjálfur líklega of nálægt þeirri daglegu starfsemi Grundarheimilanna til að geta áttað sig á samhengi hlutanna. Jóni Þór tókst að draga upp hlutlausa mynd af öldinni sem liðin er frá því að hugmyndin um stofnun og rekstur öldrunarheimilis kom upp hjá langafa mínum og fleiri góðum mönnum. Ég hvet ykkur til að poppa, kæla gosið og setjast við sjónvarpsskjáinn næstkomandi sunnudagskvöld kl 20.15. Njótið. Kveðja og góða helgi, Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna

Tjúttað á Grund

Grundarbandið heldur uppi fjöri þessa stundina í hátíðasalnum og dásamlegt að sjá starfsfólk og heimilisfólk skella sér í sveiflu. Grundarbandið kemur til okkar reglulega og við erum afskaplega þakklát fyrir þessa einstaklinga sem mæta til okkar í sjálfboðavinnu til að gleðja heimilisfólk. Takk kærlega

Mættu með blóm í afmæliskaffi

Hússtjórnarskólinn í Reykjavík fagnar 80 ára starfsafmæli á þessu ári og í síðustu viku var haldið upp á afmælið. Gestum gafst kostur á að kíkja í kennslustundir og skoða það sem nemendur eru að gera dags daglega. Boðið var upp á afmælisköku og kaffi. Tvær heimiliskonur mættu í afmælið, enda skólinn svo að segja í næsta húsi. Þær færðu skólanum blómvönd frá Grund og skoðuðu starfsemina.

Afhenti heimilismönnum afmælisgjöf frá Grund

Í tilefni aldarafmælis Grundar var gefið út afmælisrit um heimilið, saga Grundar í 100 ár. Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundarheimilanna, fór um heimilið og færði heimilismönnum bókina að gjöf auka borðdagatals með gömlum myndum frá Grund. Gísli Páll segir þessar heimsóknir hafa veitt sér gleði og hann er mjög ánægður með að hafa fengið tilefni til að spjalla við heimilisfólkið við það að gefa þeim sögu Grundar. Hann segir að margir hafi verið afar þakklátir og skildu hreinlega ekki af hverju afmælisbarnið sjálft væri að gefa afmælisgjöf en þáðu bókina með miklum þökkum. Ýmislegt kom til tals. Meðal annars þökkuðu mjög margir fyrir aðbúnaðinn, starfsfólkið og öryggið sem þau upplifðu við það að búa á Grundarheimilunum. Gísli Páll segir að það hafi verið notalegt að finna hversu mörgum líður mjög vel á heimilunum. Það voru feðginin sr. Guðmundur Óskar Ólafsson og Guðbjörg R Guðmundsdóttir sem rituðu bókina, Guðmundur Óskar sá um að rita 75 ára sögu heimilisins fyrir aldarfjórðungi og síðan bætti dóttir hans Guðbjörg við 25 árum svo úr varð 100 ára saga heimilisins.

Kaffisamsæti í betri stofunni

Það var notalegt kaffisamsætið sem Ísafold og Ásta héldu á fjórðu hæðinni hér á Grund í vikunni. Betri stofan á Vegamótum hefur fengið smá andlitslyftingu svo það er um að gera að njóta hennar í góðra vina hópi.

Að gefa bók

Eins og hefur áður komið fram á þessum vettvangi gáfum við út 100 ára sögu Grundar í tilefni af aldarafmæli heimilisins nú í október síðastliðnum. Framúrskarandi vel rituð af þeim feðginum Guðmundi Óskari Ólafssyni (fyrstu 75 árin) og svo dóttur hans Guðbjörgu Guðmundsdóttur (síðustu 25 árin). Bókin var prentuð í nokkur þúsund eintökum og strax ákveðið að gefa öllum heimilis- og starfsmönnum Grundarheimilanna eintak. Starfsmenn hafa sótt sér eintak á undanförnum dögum og stendur hún þeim endurgjaldslaus til boða í verslunum Grundarheimilanna til áramóta. Ég aftur á móti ákvað að færa öllum heimilismönnunum Grundarheimilanna þriggja bókina ásamt gamadags borðdagatali með myndum úr starfsemi Grundar á fyrri hluta og upp úr miðri síðustu öld. Sú gjafaferð hefur staðið yfir undanfarna daga og hefur gefið mér mikið. Ég er ekki spjalltýpan, að rölta um heimilin þrjú, setjast niður með heimilisfólki og taka það tali. Ég þarf að hafa „tilgang“ með spjallinu, ef þannig má að orði komast. Kannski finnst lesendum þetta skrýtið, en svona er ég bara. Mamma var, og er reyndar enn, þessi góða manneskja sem röltir um Grund og spjallar og tekur kaffibolla með heimilis- og starfsfólki. Sem er bara fínt. Ég var því mjög ánægður með að hafa fengið tilefni til spjalls við heimilisfólkið við það að gefa þeim sögu Grundar. Margir voru afar þakklátir og skildu hreinlega ekki af hverju afmælisbarnið sjálft væri að gefa afmælisgjöf en þáðu bókina með miklum þökkum. Ýmislegt kom til tals. Meðal annars þökkuðu mjög margir fyrir aðbúnaðinn, starfsfólkið og öryggið sem þau upplifðu við það að búa á Grundarheimilunum. Það var notalegt að finna hversu mörgum líður mjög vel hjá okkur. Við erum sennilega að gera eitthvað rétt. Nokkrir spurðu hvort þau mættu taka í hendina á mér og þakka fyrir. Upplifði mig eitt augnablik eins og „fræga rokkstjörnu“, sem ég er alls ekki en fannst þetta nokkuð skondið. Ein heimiliskona bað mig um áritun, sem mér þótti mjög vænt um. Ef aðstandendur eða einhverjir aðrir vilja eintak af bókinni þá er það sjálfsagt mál. Datt í hug að leggja til, að þeir sem myndu þiggja eintak, aðrir en heimilis- og starfsmenn Grundarheimilanna, myndu leggja eins og þrjú þúsund krónur inn á eitthvað það líknarfélag sem þeim hugnast. Eitthvað sem afi minn Gísli Sigurbjörnsson hefði líklega gert við tímamót sem þessi og ég er sennilega að stela hugmyndinni frá honum. Þannig að ef einhver vill eintak, sendið línu á mig eða grund@grund.is, bókin verður send til ykkar og þið ráðið þá hvert þrjúþúsundkallinn fer. Kveðja og góða helgi, Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna

Takk

Í síðustu viku héldum við á Grundarheimilunum upp á 100 ára afmæli Grundar sem var þann 29. október. Með margskonar viðburðum í þeirri viku en auk þess höfðum við til dæmis boðið heimilismönnum upp á tónleika með Guðrúnu Gunnars, Jögvan Hansen og Siggu Beinteins og gefið öllum starfsmönnum heimilanna þriggja vandaða flíspeysu frá 66° norður. Þá erum við þessa dagana að færa öllum heimilis- og starfsmönnum Grundarheimilanna 100 ára sögu heimilisins sem Guðbjörg Guðmundsdóttir starfsmaður á skrifstofu ritaði. Í sjálfri afmælisvikunni voru haldin kaffisamsæti með heimilisfólkinu sem bauð aðstandenda með sér í boðið. Reyndar boðið upp á heitt súkkulaði, ekki kaffi. Og dýrindis bakkelsi með rjóma og tilheyrandi. Ég náði að flytja stutt ávarp í öllum boðunum, alls 18 sinnum. Þetta voru skemmtilegar og hátíðlegar samkomur. Allir brosandi, ánægðir og þakklátir fyrir að við skyldum halda upp á afmælið með þessum hætti. Á sjálfan afmælisdaginn, síðastliðinn laugardag, var boð á Grund fyrir boðsgesti. Afar vel heppnað, góð mæting, fínar og mátulega langar ræður og góður andi meðal gestanna. Fengum góðar gjafir, styttu, málverk, umtalsverða peningagjöf, söngskemmtun fyrir heimilismenn og blómvendi. Og um kvöldið var svo öllum starfsmönnum boðið til glæsilegrar árshátíðar og mættu tæplega 600 manns. Það var svo gaman að sjá og upplifa gleði, þakklæti og stuð í mannskapnum. Með pistli þessum vil ég þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessu stórkostlega afmæli okkar, bæði með vönduðum undirbúningi sínum og ekki síður þeim sem heimsóttu okkur í kaffiboðin, laugardagsboðið og djömmuðu með okkur á árshátíðinni. Einnig hjartans þakkir fyrir allar góðar gjafir og hlý orð í okkar garð, sem hafa verið fjölmörg undanfarið, bæði í tölvupósti, símtölum, við hitting og í raun við hvaða tækifæri sem gafst. Ég hefði aldrei trúað því að þetta yrði svona skemmtileg og fjölbreytt afmælisvika. Vissulega búið að undirbúa hana vel en ég var ekki alveg rólegur vikuna þar á undan. Óþarfa áhyggjur og svefnleysi til dæmis vegna þess að ég hélt kannski að við kæmumst ekki öll fyrir í hátíðarsalnum í boðinu á laugardeginum. Sá þann dag að það var þvílík þvæla í mér. Takk fyrir okkur 😊 Kveðja og góða helgi, Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna