Fréttir

Heimilismenn bólusettir

Kæru aðstandendur Heilbrigðisyfirvöld mæla með Covid örvunarbólusetningu fyrir alla 60 ára og eldri og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma ef liðnir eru 4 mánuðir eða meira frá síðustu bólusetningu. Í janúar munum við bjóða þeim sem þar sem liðið er meira en 4 mánuðir frá síðustu bólsetningu upp á Covid örvunarbólusetningu. Við biðjum ykkur um að láta okkur vita eins fljótt og þið getið ef þið eruð alfarið á móti því að ykkar aðstandandi fái örvunarskammt. Best að láta viðkomandi deildarstjóra vita eða senda póst á sigridur@grund.is

Væg einkenni

Var að spjalla við eiginkonuna og annan samstarfsmann um daginn. Ég eitthvað smá utan við mig og Alda segir að ég hafi öll einkenni athyglisbrests og ofvirkni. Ég, í alvörunni, hafði aldrei leitt hugann að þessu og brá talsvert. Hef svo sem gert mér grein fyrir því að ég er tiltölulega virkur og þokkalega duglegur að eðlisfari, en hafði aldrei leitt hugann að þessu áður. Fannst einhver veginn að flestir sem hefðu slík einkenni væru á einhvers konar lyfjum eða meðferðum vegna þessa. Og ég hef aldrei tekið nein slík lyf eða spáð í einhvers konar meðferð. Ferlegir fordómar og fáfræði af minni hálfu, en ég viðurkenni það þó, segi nánast alltaf það sem mér finnst. Á það reyndar til að gleyma hlutum, vaða úr einu í annað, var í eldhúsinu áðan að taka úr uppþvottavélinni, datt þá í hug að sækja kjöt í frystinn niðri fyrir annað kvöld, hætti að taka úr hálfri vélinni, fór niður og tók úr þvottavélinni og setti í þurrkarann og gleymdi að taka kjötið úr frystinum. Týni hlutum tiltölulega auðveldlega, legg þá frá mér í hugsunarleysi og man svo ekkert hvar ég skildi þá eftir. Finn þá stundum nokkrum dögum síðar, eða bara alls ekki. Finn ekki, þrátt fyrir talsverða leit, einhverja hluti sem eru svo beint fyrir framan mig, næ bara ekki einbeitingu í leitinni. Þegar ég skrifa á lyklaborðið skrifa ég stundum stafi úr næsta eða þarnæsta orði, er kominn á undan mér í huganum og átta mig ekki á því fyrr en ég er í raun kominn í næsta orð, án þess að vera búinn að skrifa orðið sem er á undan. Er eins og áður sagði frekar ör, snöggur til, og jafnvel hvatvís. Hef þó aðeins, held ég, róast með árunum. Hef þó gengið þokkalega í skóla hingað til en líklega hefði ég verið settur á einhver lyf ef ég hefði fæðst þrjátíu árum síðar. Líður bara vel með þessa greiningu eiginkonunnar en velti þessum hlutum þó aðeins fyrir mér. Ætla þó ekki að grípa til neinna aðgerða eða leita mér greiningar eða hjálpar. Líkar bara ágætlega við mig eins og ég er. Og líklegast hef ég bara allnokkur einkenni athyglisbrests og ofvirkni, ekki væg. Ég segi bara eins og hálfnafni minn: „Ég er eins og ég er.“ Kveðja og góða helgi, Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna

Jólin kvödd með dansi

Að venju voru jólin kvödd með pompi og prakt á Ási á þrettándanum. Kristján og félagar héldu uppi fjörinu með harmonikkutónum, jólasveinarnir kíktu í heimsókn og eldhúsið bauð upp góðar veitingar.

Þrettándaball

Það er aldrei lognmolla þegar hún Hjördís Geirsdóttir leiðir söng og skemmtir. Hún er líka með frábæra hljómsveit með sér, fjölmarga úrvals harmonikkuleikara úr Grundarbandinu og píanistann Sigmund Indriða Júlíusson. Þetta er alvöru þrettándaball sem nú stendur yfir í hátíðasal heimilisins þar sem heimilisfólk, aðstandendur og starfsfólk skemmta sér hið besta.

Áramótamatseðill Grundarheimilanna 2022-2023

Nýtt ár handan við hornið

Enn eitt skemmtilegt, viðburðar- og árangursríkt árið er rétt að renna sitt skeið. Tvennt stendur upp úr í mínum huga. Aldarafmæli Grundar og lok Covid 19 tímabilsins. Þó er óhætt að segja að við erum ekki alveg laus við Covid 19, heldur er það orðið hluti af okkar daglega lífi og ekki nauðsynlegt, í það minnsta ekki eins og er, að tækla smitin af þeirri hörku sem leiddu af sér einangrun heimilismanna og vanlíðanar þeirra, aðstandenda og ekki síður starfsfólks Grundarheimilanna. Ég hef í fyrri pistlum fjallað um Covid 19, aðgerðir okkar, afleiðingar og læt þar við sitja í bili. Eflaust koma einhverjir aðrir slíkir sjúkdómar aftur sem gera okkur skráveifu, og þá tökum við á því eins og við þekkjum best til. Hitt atriðið sem ég nefndi hér að framan er 100 ára afmæli Grundar. Ég er afskaplega stoltur og ánægður með hvernig til tókst að minnast þessara merku tímamóta. Það hefur þó líklega ekki hvarflað að langafa mínum Sigurbirni og hans samstarfsmönnum fyrir rúmum hundrað árum að Grund sé og hafi verið sá mikli máttarstólpi í öldrunarþjónustu landsins og raun ber vitni. Grund var fyrstu rúma þrjá áratugina eina alvöru öldrunarstofnun landsins og eftir að Hrafnista tekur til starfa á sjötta áratugnum þá hafa þessi tvö heimili verið tvö þau stærstu í öldrunarbransa landsins. Það er vandaverk að halda áfram á þeirri góðu braut sem forfeður mínir mörkuðu og auðvitað kemst ég ekki með tærnar þar sem þeir höfðu hælana. Framundan eru bjartir tímar og tímar mikilla áskorana í öldrunarþjónustu. Aldurssamsetning þjóðarinnar er með þeim hætti að neytendum öldrunarþjónustu kemur til með að fjölga verulega á næstu árum og áratugum, eitthvað sem margir aðrir atvinnuvegir búa ekki við. Með pistli þessum vil ég nota tækifærið og þakka heimilisfólki Grundarheimilanna fyrir þrautseigju í Covid 19 faraldri og skilning aðstandenda á þeim aðgerðum sem við gripum til vegna faraldursins. Sérstakar þakkir færi ég öllu starfsfólki Grundarheimilanna fyrir það framúrskarandi góða starf sem þið hafið innt af hendi undir þeim mjög svo erfiðu kringumstæðum sem faraldur síðustu rúmlega tveggja ára hefur valdið okkur. Þið eruð ómetanleg. Kveðja og gleðilegt nýtt ár, Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna

Lúsía og þernur hennar sungu jólalögin

Fyrir löngu var til siðs hér á Grund að fá í heimsókn lúsíu og þernur hennar á aðventunni. Þær gengu um húsið og sungu sænsk og íslensk jólalög með lifandi kertaljós í hendi og lúsían sjálf með kertakrans á höfði. Í ár var ákveðið að endurvekja þennan gamla sið. Lúsía og þernur hennar mættu og gengu um húsið og sungu jólalög undir stjórn Mariu Cederborg

Samsöngur fyrir jólin

Rebekka efndi til samsöngs einn kaldan daginn á aðventu þar sem jólalögin voru sungin og henni til aðstoðar voru stórskemmtilegir jólaálfar. Það er svo notalegt þegar starfsfólkið bryddar upp á einhverju skemmtilegu eins og þessu. Takk Rebekka og jólaálfar.

Margir glöddu heimilisfólk á aðventu

Það komu ótrúlega margir gestir til okkar á Grund nú fyrir jólin, sungu jólalögin, léku á hljóðfæri, lásu og styttu fólkinu okkar stundir með ýmsum hætti. Þar á meðal var t.d. sönghópurinn Spectrum, félagar sem spila með lúðrasveitinni Svan, Grundarbandið, Skólahljómsveit Vestur,- og miðbæjar, börnin í Landakotsskóla, Laufáskórinn og ekki má gleyma Senu sem gaf öllum okkar heimilismönnum aðgang að jólagestum Björgvins. Við þökkum ykkur öllum af alhug. Þið glödduð heimilisfólkið okkar svo sannarlega. Takk kærlega.

Gleðileg jól