11.06.2021
Útivera og að rótast í mold er fín blanda og heimilisfólkið í Bæjarási naut þess virkilega nú í vikunni þegar það var að pota niður útsæði og koma jarðarberjaplöntum í kassa. Það er nefnilega gott að hafa eitthvað fyrir stafni, sama hvaða aldurskeiði maður er á
11.06.2021
Kristján X konungur Dana og Íslendinga á þeim tíma, undirritaði skipulagsskrá Grundar árið 1925. Samkvæmt henni er sú skylda skýr, að ef einhver hagnaður myndast af starfseminni skuli honum varið til áframhaldandi uppbyggingar heimilisins. Engin heimild er til þess að greiða arð eða verja hagnaði í óskylda starfsemi. Síðan er bráðum liðin heil öld af farsælum rekstri Grundarheimilanna og við þetta ákvæði í skipulagsskránni, sem að mestu leyti hefur verið óbreytt frá upphafi, hefur ávallt verið staðið. Þess vegna hefur umfang starfseminnar vaxið hægt og bítandi. Hin síðustu ár hefur reyndar því miður ekki reynt á skilyrðið um ráðstöfun hagnaðar - taprekstur þorra hjúrunarheimilanna hefur verið viðvarandi árum saman og Grundarheimilin eru þar engin undantekning. Allir finna fyrir þeirri naumhyggju sem einkennir fjárveitingar frá stjórnvöldum enda þótt þau hafi lögboðnar skyldur gagnvart þessari þjónustu við þá elstu og veikustu.
Stjórnvöld hafa auglýst eftir aðilum sem taka vilja við rekstri hjúkrunarheimila sem sveitarfélögin hafa gefist upp á að reka áfram vegna lágra daggjalda og viðvarandi tapreksturs. Er það tekið sérstaklega fram að það sé æskilegt að viðkomandi aðilar nálgist verkefnið á félagslegum grunni, t.d. eins og Grund, og að mögulegum hagnaði verði ekki varið í óskyld verkefni. Þegar rekstur og þjónusta hjúkrunarheimilanna er annars vegar geta stjórnvöld þessa dagana fundið sér margt þarfara til að hafa áhyggjur af' en mögulegum hagnaði af rekstri hjúkrunarheimila. Þau gætu t.d. einbeitt sér að lausnum á viðvarandi taprekstri þeirra, menntunarstigi starfsmanna, þjónustustigi og magni umönnunar, óleystra húsnæðismála, afleiðingum af styttingu vinnuvikunnar, löngum biðlistum og áfram mætti lengi telja. Áhyggjur af mögulegri gróðamyndun komast ekki einu sinni á topp tíu listann. Vonandi rennur sú stund engu að síður upp, að ráðstöfun hagnaðar verði á nýjan leik á meðal verkefna stjórnenda hjúkrunarheimila fyrir aldraða. Til þess þarf mikla viðhorfsbreytingu. Ekki hjá þjóðinni heldur kjörnum fulltrúum hennar á þingi.
Hávær umræða í fjölmiðlum og sem betur fer einnig innan veggja Alþingis hefur leitt til þess að örlítið er þessa dagana verið að koma til móts augljósar nauðþurftir hjúkrunarheimilanna. Reynt er að stoppa í götin með fjármagni sem vissulega fleytir rekstrinum áfram um sinn en betur má þó ef duga skal. Langt er í frá, að daggjöld hafi fylgt launaskriði undanfarinna ára, enda þótt launaliðurinn sé um 80% af rekstrarkostnaði. Stytting vinnuvikunnar er nú komin til fullrar framkvæmdar og ljóst er að henni fylgir mikill kostnaðarauki. Við á Grund höfum barist fyrir því í mörg ár að fá greidda eðlilega húsaleigu fyrir það húsnæði sem við leggjum undir hjúkrunarheimili Grundar og Áss, en við því hefur verið daufheyrst með alls kyns undanbrögðum. Við höfum einnig bent á miklar hækkanir á lyfjakostnaði og einnig aukna umönnunarþörf vegna hækkandi aldurs og um leið verri heilsu heimilisfólks okkar. Svo virðist sem það örli á auknum skilningi stjórnvalda á þessum þáttum. Einhvers staðar í enda ganganna virðist því vera örlítil ljóstýra.
Það er góð tímasetning þegar haft er í huga að sumarsólstöður, og um leið bjartasti dagur ársins, eru innan fárra daga. Vonandi er að við eigum bæði sólríkt og skilningsríkt sumar framundan og að skammdegið sem grúft hefur yfir hjúkrunarheimilisrekstrinum alltof lengi komi aldrei aftur, enda þótt það sé árvisst að það hausti með haustinu eins og einhver sagði.
Kveðja og góða helgi,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna
10.06.2021
Hella heimilismaður var að fá þetta krútt sem herbergisfélaga. Hún heitir Naomi og er pínu feimin en alveg yndisleg.
08.06.2021
Ásgeir Jóhannesson forystumaður í Sunnuhlíð færði Grund á dögunum bók að gjöf en hann er einn af upphafs- og ábyrgðarmönnum þess að Sunnuhlíð var reist og tekin í notkun árið 1982. Gísli Sigurbjörnsson, þáverandi forstjóri Grundar og sonur sr. Sigurbjörns Á Gíslasonar eins stofnenda Grundar, studdi uppbyggingu Sunnuhlíðar með góðum ráðum og verulegum fjárframlögum.
04.06.2021
Á Grundarheimilunum þremur vinna margir erlendir starfsmenn. Og standa sig mjög vel. Án þeirra værum við í miklum vandræðum með að sinna þeim fjögur hundruð heimilismönnum sem hjá okkur búa. Langflestir tala íslensku, eðlilega mis góða. Allt eftir því hversu lengi hver og einn hefur búið á Íslandi en einnig eftir því hversu mikill áhugi er hjá viðkomandi að tala tungumálið.
Ég hef alltaf hvatt alla þá erlendu starfsmenn sem ég hitti og vinna hjá okkur að læra og nota íslenskuna eins fljótt og vel og kostur er. Til að geta átt samskipti og tekið virkan þátt í íslensku samfélagi er að mínu mati lífsnauðsynlegt að geta talað þokkalega íslensku. Ég er ekki að tala um óaðfinnanlega íslensku með öllum beygingum réttum, nei, bara þannig að hægt sé að eiga samskipti um daglega hluti við heimilisfólkið og annað starfsfólk.
Við á Grundarheimilunum höfum í gegnum árin haldið íslenskunámskeið og þá oft í samvinnu við stéttarfélögin. Stéttarfélögin styðja einnig sína félagsmenn til að sækja íslenskunámskeið og greiða allt að 90% af námskeiðsgjaldinu. Við í framkvæmdastjórninni erum að skoða hvaða leiðir eru færar til að efla enn frekar íslenskunám fyrir okkar erlendu starfsmenn.
Við sem vinnum með erlendum starfsmönnum dettum eflaust oft í þann þægindagír að tala bara ensku við viðkomandi starfsmann, ef íslenskan er erfið. Það er eitthvað sem mér finnst að við eigum að forðast eins mikið og hægt er. Ef við tölum ekki íslensku, eða í það minnsta bjóðum upp á slíkt, við erlenda samstarfsmenn, þá æfast þeir ekki í íslenskunni. Og það er eitthvað sem er svo mikilvægt fyrir okkur öll, að allir þeir sem vinna á Grundarheimilunum geti og vilji tala íslensku, allra vegna.
Gerum okkur öllum stóran greiða, tölum meiri íslensku 😊
Kveðja og góða helgi,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna
03.06.2021
Í mai var haldið hjólanámskeið á vegum Hjólað óháð aldri. Ólafur eiginmaður Hönnu Maju hér í Mörk bauð eiginkonunni í skemmtilega hjólaferð í rigningunni.
María og Alda fóru einnig rúnt í garðinum.
Áhugasamir aðstandendur um hjólaferðir með heimilisfólki geta nálgast nánari upplýsingar hjá sjúkraþjálfuninni eða í vinnustofu heimilisins.
02.06.2021
Í mörg ár höfum við verið með heimilismannaráðsfundi hér á Grund .En vegna Covid hafa þeir legið niðri. Það var ánægjulegt þegar heimilismenn komu saman á ný og ræddu um ýmislegt sem má betur fara en líka annað sem er gott. Fjörugar umræður spunnust um hundrað ára afmæli heimilisins sem er á næsta ári og allskonar hugmyndir sem komu upp. Svo eru heimilismenn oft með sterkar skoðanir á matnum og afþreyingunni sem þeim stendur til boða. Semsagt frábærir fundir og skemmtilegir og iðulega hafa heimilismenn komið með gagnlegar ábendingar sem við þökkum kærlega fyrir og förum eftir.