10.11.2023
Síðasta miðvikudagskvöld voru tónleikar fyrir íbúa 60+ með Stórsveit Íslands. Stórsveit Íslands ásamt söngvurum léku íslenskt bítl (frá árunum 1962-1977). Lögin voru útsett af Þórði Baldurssyni og voru söngvararnir Vigga Ásgeirsdóttir, Ari Jónsson og Davíð Ólafsson. Á tónleikunum fengu íbúar að heyra tónlist frá upphafsárum íslenskrar bítlatónlistar í stórsveita stíl. Þökkum við kærlega fyrir frábæra kvöldstund.
06.11.2023
Þegar fólk flytur á Grundarheimilin er lagt uppúr því að lífssaga fylgi viðkomandi. Lífssagan er eitt það mikilvægasta sem starfsfólkið fær í hendur um heimilismenn.
03.11.2023
Forseti Íslands, Guðni Th Jóhannesson flutti ávarp við upphaf alþjóðlegu tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves en að venju fór opnunarhátíðin fram á Grund
02.11.2023
Það var fjör á nikkuballi í Mörk
01.11.2023
Í dag komu um 45 sjúkraliðanemar frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti að kynna sér starfsemina í Mörk
01.11.2023
Heimilisfólk og starfsfólk í Ási tók höndum saman og skreytti og skar úr grasker fyrir hrekkjavökuna sem var í gær
27.10.2023
Grund fagnar um þessar mundir 101 árs afmæli og býður jafnframt í foreldrakaffi sem hefur verið boðið í frá árinu 1925 með eintaka undantekningum
27.10.2023
Á Grundarheimilunum erum við með starfandi sjúkraþjálfara og íþróttafræðinga. Þær Guðrún Geststdóttir og María Guðnadóttir eru sjúkraþjálfara starfandi annars vegar á Grund og hinsvegar í Mörk. Í nokkurn tíma núna hefur okkur vantað sjúkraþjálfara í Ási en það stendur heldur betur til bóta því um mánaðarmótin er væntanleg til starfa Christina Finke. Býð ég hana velkomna til starfa og hlakka til að sjá líf færast í starfsaðstöðu sjúkraþjálfunar í Ási eftir nokkurt hlé. Guðrún og María segja hér að neðan frá starfsemi sjúkraþjálfunar á Grund og í Mörk.
Markmið sjúkraþjálfunar er að viðhalda og/eða auka virkni, hreyfifærni og göngugetu heimilismanna og stuðla þannig að aukinni sjálfsbjargargetu og vellíðan, bæði andlegri og líkamlegri. Einnig að finna leiðir til varnar byltum, kreppumyndun og myndun þrýstingssára. Sjúkraþjálfari og íþróttafræðingar vinna saman að þjálfun heimilisfólks Grundarheimilanna.
Heimilisfólki býðst að mæta í þjálfun 2-3x í viku eða eftir samkomulagi, ýmist í æfingasal eða á heimili þess. Sjúkraþjálfari metur alla íbúa með tilliti til líkamlegrar færni og setur upp einstaklingsmiðaða æfingaáætlun í samráði við íþróttafræðinga og íbúann sjálfan. Áherslur í þjálfun eru á styrkjandi og liðkandi æfingar, göngu- og jafnvægisæfingar, auk úthaldsaukandi æfinga, allt eftir þörfum og áhuga hvers og eins. Sjúkraþjálfari veitir verkjameðferð eftir þörfum í þverfaglegri samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir, sinnir endurhæfingu eftir slys og veikindi, metur þörf fyrir og útvegar spelkur, hjólastóla og göngugrindur og er tengiliður við stoðtækjafyrirtækin varðandi viðhald og viðgerðir á þeim. Að auki fræðir sjúkraþjálfari starfsmenn og leiðbeinir um góðar vinnustellingar til að forðast álagsmeiðsli.
Íþróttafræðingar stýra sitjandi hóptímum 1-2x í viku á hverri deild þar sem áherslan er fyrst og fremst á styrkjandi og liðkandi æfingar
Kveðja og góða helgi,
Karl Óttar Einarsson
Forstjóri Grundarheimilanna
26.10.2023
Það var skemmtileg heimsóknin sem við fengum hingað á Grund í gær.
26.10.2023
Það er gaman að segja frá því að síðasta sperran er komin upp í kaffihúsið sem nú rís í garði Grunda