06.01.2022
• Alger grímuskylda er á meðan á heimsókn stendur.
• Mörk er eingöngu opin á milli kl. 13-18 fyrir heimsóknir.
• Eingöngu má koma 1 aðstandandi í heimsókn á dag og biðjum við um að það sé alltaf hinn sami ef mögulegt er.
• Ekki er hægt að leyfa ferðir heimilismanna úr húsi nema brýn ástæða sé til.
• Heimsókn þarf að vera inni á herbergi viðkomandi. Ekki staldra við í sameiginlegum rýmum heimilisins.
04.01.2022
Nú er búið að setja þetta myndarlega skýli yfir aðal inngang heimilisins. Þá er þar einnig komið stórt skilti með fallega trénu sem einkennir allt sem merkt er Grund og Grundarheimilunum. Þá hefur sjálfum innganginum verið breytt og hann er nú að öllu leyti þægilegri fyrir þá sem eru með göngugrindur eða í hjólastól. Það er alltaf verið að breyta og bæta
03.01.2022
Fjárlögin fyrir næsta ár komu heldur seint fram þetta árið þar sem ný ríkisstjórn var mynduð á löngum tíma, vegna talningaklúðurs, nóg um það. En þegar við stjórnendur hjúkrunarheimila sáum fjárlagafrumvarpið fór um okkur nokkur hrollur. Þar vantaði að okkar mati að festa í sessi/daggjaldagrunni hjúkrunarheimilanna þann auka milljarð sem var bætt inn í daggjöldin í lok síðasta sumars. Sú viðbót var nauðsynleg og kærkomin fyrir heimili sem mörg hver voru við hungurmörk. Þegar milljarðurinn bættist við, fylgdi því árétting af hálfu fjárveitingavaldsins þess efnis að ekki væri um að ræða viðbót sem mætti búast við að bættist við núverandi daggjaldagrunn þessa árs.
Sem betur fer sáu ráðherrar, þingmenn og aðrir þeir sem komu að umræðu og gerð breytingartillagna fjárlaganna ljósið og skiptu um skoðun. Með þessu sýnist mér að rekstrargrunnur hjúkrunarheimilanna sé á verulega traustari grunni en verið hefur í mörg undanfarin ár. Þar að auki var bætt inn í daggjaldagrunninn 1.200 milljónum króna vegna verkefnisins „Bættur vinntími vaktavinnufólks“, eitthvað sem vantaði inn í daggjaldagrunninn í fjárlagafrumvarpinu.
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu með Bjarka Þorsteinsson formann og Sigurjón Norberg Kjærnested framkvæmdastjóra í fararbroddi hafa að mínu mati unnið feikn gott og mikilvægt starf fyrir aðildarfélögin og augljóst að þar fara afar hæfir menn. Með ítarlegri umsögn um fjárlagafrumvarpið auk fimm viðbótarerindum henni tengdri til fjárlaganefndar og heilbrigðisráðuneytis tókst að gera þær mjög svo mikilvægu endurbætur á fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár. Hluti umsagnar og erinda skilaði góðum árangri fyrir önnur aðildarfélög SFV en þau sem eru í hjúkrunarheimilisrekstri og er það vel.
Mér sýnist einnig að viðhorf nýs heilbrigðisráðherra, Willums Þórs Þórssonar, sé á jákvæðum og góðum nótum og fyrir það ber að þakka. Og eflaust hefur fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, og fjárlaganefnd einnig komið að þessum góðu breytingum og fyrir það er einnig þakkað.
Þess ber þó að geta að ekki er búið að semja við hjúkrunarheimilin um rekstur næsta árs og þá væntanlega næstu ára. Núverandi samningur rennur út 1. mars nk. og hafa því samninganefnd SFV og Sambands sveitarfélaga tvo mánuði til að ljúka gerð nýs samnings. Ég bind miklar vonir við að sá samningur verði okkur sem rekum hjúkrunarheimili landsins hagstæður og að áralangur niðurskurður fjárframlaga til okkar verði á enda.
Kveðja og gleðilegt nýtt ár,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna
28.12.2021
Það var ánægjuleg heimsóknin sem við fengum á Litlu og Minni Grund fyrir jólin. Nemendur úr 6. bekk i Vesturbæjarskóla komu og sungu jólalögin fyrir heimilismenn. Þvílík gleði sem skein úr andlitum fólksins við að hlusta á þessi yndislegu ungmenni syngja inn jólin hjá okkur. Takk kærlega fyrir frábæra heimsókn. Hlökkum til að sjá ykkur næst.
27.12.2021
Annað árið í röð höldum við jólin hátíðleg í skugga andstyggilegrar veiru. Í fyrra var þetta eitthvað sem við vissum ekki hvernig ætti að tækla, en í ár erum við reynslunni ríkari. Reyndar eru líklega langflestir ef ekki allir orðnir hundleiðir á þessum endalausu boðum og bönnum sem koma með reglulegu millibili frá æðstu stjórnendum og ábyrgðarmönnum heilbrigðiskerfisins. Þeim til vorkunnar eru þau öll sömul að eiga við veiru sem virðist breyta sér eftir því sem tíminn líður og enginn veit í raun hvaða afleiðingar hvert afbrigði hennar hefur á heilsufar og líðan þeirra sem smitast.
Hef trú á doktor Kára Stefánssyni, sem sagði þegar nýjasta afbrigðið kom fram, að líklega yrði það afbrigði meira smitandi en hefði í för með sér vægar einkenni veikinda. Til þess að veira haldi áfram að lifa má hún ekki drepa þá sem hún smitar, veiran virðist „vita þetta“ og þess vegna er þróunin sem Kári lýsir líkleg, í það minnsta að mínu mati. Og er það vel. Ef hans spár ganga eftir verður það versta í það minnsta yfirstaðið þegar kemur að jólunum að ári.
En við skulum nú engu að síður reyna að njóta jólanna saman. Því miður hafa komið upp nokkur smit á Grundarheimilunum undanfarið og hefur það í för með sér viðeigandi ráðstafanir, einangrun eininga og deilda og annað það sem slík smit hafa í för með sér. Eins grábölvað og það er nú, þá erum við með þessu að taka meiri hagsmuni fram yfir minni. Líf og heilsa heimilismanna er í okkar huga, sem stjórnum Grundarheimilunum, mikilvægari og dýrmætari en heimsóknir, þó að þær sé vissulega einnig mjög mikilvægar, ekki síst á jólunum. Frumniðurstöður hagfræðilegrar rannsóknar um hagkvæmni heimsóknarbannsins sem var sett á í mars á síðasta ári í rúma þrjá mánuði, benda eindregið til þess að sú ákvörðun hafi verið mjög svo fjárhagslega hagstæð. Nánar um það síðar.
En svona er lífið. Sífelldar áskoranir sem við þurfum að takast á við og tækla. Við skulum sameinast um að leysa þau verkefni sem okkur eru falin, góð og slæm. Jafnvel þó það þýði öðruvísi og ekki eins skemmtileg jól og við myndum óska okkur.
Kveðja og gleðileg jól og farsælt komandi ár,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna
22.12.2021
Notaleg stund í gær í austurhúsi Grundar þar sem heimilisfólk sat saman og skar út laufabrauð, las Heimilispóstinn og prjónaði. Já aðventan er ósköp notaleg hér hjá okkur á Grund.
22.12.2021
Heimilisfólk var að pakka jólaútgáfu Heimilispóstsins í gær sem fara á til aðstandenda í pósti.
22.12.2021
Heimilisfólk var að pakka jólaútgáfu Heimilispóstisins í gær sem fara á til aðstandenda í pósti. Dásamleg stund þar sem spjallað var um allt milli himins og jarðar og ánægjan ekki síst fólgin í að geta orðið að liði og hafa hlutverk.
22.12.2021
Það er ljúf aðventan í Ási eins og alltaf. Sr Pétur Þorsteinsson kom og söng með heimilisfólki jólalögin. Smákökubaksturinn hélt áfram og svo voru bakaðar súkkulaðibitakökur í haugum. Það var spilað jólabingó og vinningarnir glæsilegir en ýmis fyrirtæki í Hveragerði og næsta nágrenni gáfu veglega vinninga. Þeim er kærlega þakkað fyrir stuðninginn.
21.12.2021
Nú verðum við að taka höndum saman, sem aldrei fyrr, til þess að verja heimilisfólk og starfsfólk smiti.
Eftirfarandi reglur gilda frá 21.desember: