13.12.2021
Það er verið að baka víða á Grund, smákökuilmur tekur á móti manni í setustofum heimilisins. Nokkrar myndir sem teknar hafa verið undanfarna daga
13.12.2021
Það var virkilega notalegt á Litlu Grund þegar heimilismenn sátu við jólatónlist og bökuðu smákökur síðastliðinn laugardag. Það var síðan boðið upp á nýbakaðar smákökur með kaffinu.
03.12.2021
Fyrsta sunnudag í aðventu var kynnt ný ríkisstjórn Íslands undir forystu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Sömu stjórnmálaflokkar og á fyrra kjörtímabili, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir. Flestir ráðherrar halda ráðherraembætti en tilflutningur þó sumra á milli ráðuneyta. Þá koma tveir nýir ráðherrar inn í hópinn þeir Jón Gunnarsson og Willum Þór Þórsson. Sá síðarnefndi nýr heilbrigðisráðherra en Willum var formaður fjárlaganefndar á síðasta kjörtímabili. Bind miklar vonir við Willum. Hann hefur góða innsýn í fjármál ríkisins og stofnana á fjárlögum og veit vel hvar skórinn kreppir. Meðal annars hjá hjúkrunarheimilum landsins.
Stjórnarsáttmálinn er heldur þunn lesning og afar almennt orðaður. Þrátt fyrir að vera 60 blaðsíður þá er orðið hjúkrunarheimili ekki nefnt einu sinni. Í kaflanum um eldra fólk kemur orðið heimahjúkrun einu sinni fyrir. Þar er þó sagt að unnin verði aðgerðaráætlun til fimm ára í samstarfi við sveitarfélög, samtök eldri borgara og þjónustuaðila, jafnt opinbera sem sjálfstætt starfandi. Sú vinna verður væntanlega byggð ofan á og í framhaldi skýrslu eins manns nefndar Halldórs Guðmundssonar. Sem er vel. Sú skýrsla var um margt ágæt og prýðis grunnur til að byggja frekar ofan á. Ég hefði þó kosið aðeins skýrari nálgun á hvað stendur til að gera varðandi rekstur og fjármögnun þeirra rúmu tvö þúsund hjúkrunarrýma sem rekin eru hér á landi.
Ég óska nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í sínum störfum og vonast til að rekstrargrunnur hjúkrunarheimilanna verði tryggður á þessu kjörtímabili, og auðvitað vonandi til langrar framtíðar. Þar ber tvennt hæst. Sanngjarnar greiðslur fyrir þá þjónustu sem veitt er á hjúkrunarheimilunum auk þess sem að húsaleigugreiðslur er eitthvað sem verður að koma í rétt lag. Það er alls ekki sanngjarnt og rétt að ríkið komist upp með að greiða eingöngu þriðjunginn af þeim kostnaði sem hlýst af rekstri húsnæðis hjúkrunarheimilanna. Ef ekki kemur til úrbóta á þeim þætti drabbast núverandi húsnæði niður og verður ónothæft til hjúkrunaheimilisreksturs í framtíðinni.
Kveðja og góða helgi,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna
P.s. Í sáttmálanum er engin dagsetning sem segir til um hvenær hann er gerður eða til hvaða tímabils hann nær. Eitthvað sem afi minn heitinn Gísli Sigurbjörnsson hefði nú aldeilis ekki verið sáttur við. Og ekki ég heldur. Allt sem maður gefur frá sér á prenti eða alneti, tala nú ekki um ríkisstjórnarsáttmáli þriggja stjórnmálaflokka, verðskuldar dagsetningu. Sérstakt.
26.11.2021
Lionsklúbbur Seltjarnarness kom færandi hendi fyrir helgi með tvær loftdýnur handa heimilisfólki. Dýnurnar nýtast mjög vel þegar varna á legusárum og koma sér afskaplega vel hér á Grund. Lionsklúbbnum er innilega þakkað fyrir höfðinglega gjöf
23.11.2021
Það er notalegt að byrja daginn með stólaleikfimi til að liðka sig aðeins fyrir daginn eða það finnst að minnsta kosti mörgum heimilismönnum sem búa á Litlu og Minni Grund. Þessi mynd var tekin í morgun þegar fólk dreif sig í leikfimina eftir morgunmatinn
22.11.2021
Það er alltaf gaman þegar konur koma saman og spjalla og svo ekki sé nú talað um ef boðið er upp á góðar veitingar líka. Þannig var það hjá heimiliskonum sem búa í vesturhúsi Grundar í síðustu viku. Frábær félagsskapur og dýrindis veitingar.
19.11.2021
Undanfarnar vikur höfum við á Grundarheimilunum verið að taka upp Workplace sem er samskiptaforrit tengt Facebook en stendur algjörlega sjálfstætt. Helsta hlutverk WP er að með forritinu fæst sameiginlegur vettvangur allra starfsmanna Grundarheimilanna.. Þar að auki er hægt að vera með sérstakar síður fyrir hverja og eina einingu, deild, heimili og svo framvegis þar sem hægt er að koma margvíslegum upplýsingum á framfæri, til dæmis varðandi aukavaktir, óskum um skipti á vöktum og svo framvegis. Þá er WP einnig tilvalið til að skipuleggja og tilkynna skemmtanir og viðburði og ná þannig að þjappa hópum saman.
Forritið virkar eins og Facebook sem flestir þekkja og kemur í staðinn fyrir þær Facebook síður sem deildirnar og heimilin hafa notast við hingað til og í stað hefðbundinna tölvupóstsamskipta. Undirritaður forstjóri mun þó væntanlega áfram notast fyrst og fremst við tölvupóstinn varðandi dagleg samskipti og afgreiðslu ýmissa mála. Þess ber þó að geta að ég gat, reyndar með góðri aðstoð Írisar mannauðsstjóra, sett mynd af mér inn á prófílinn minn á WP, geri aðrir betur 😊
WP einfaldar aðgengi að ýmsum hagnýtum upplýsingum, til dæmis nýliðafræðslunni, starfsmannahandbókum og öðrum verklagsreglum. Það allt saman má finna undir Knowledge library.
Innleiðing hefur gengið misjafnlega undanfarnar vikur en ég er viss um að notkun forritsins verður vel þess virði. Vonandi verður starfsfólk tengdara og lifir sig meira sem hluta af heild. Fyrsti viðburðurinn á WP verður næsta laugardag. Auðvitað viljum við helst hittast í raunheimum en á meðan ástandið er eins og það er í samfélaginu, þá er þessi vettvangur tilvalinn til að eiga saman skemmtilega kvöldstund. Notum WP og njótum laugardagskvöldsins saman.
Kveðja og góða helgi,
Gísli Páll, forstjóri Grundarheimilanna
16.11.2021
Hrafnkell Kárason sem bjó á Miðbæ á 2-hæð, lést þann 29. október síðastliðinn. Ekkja hans, Dröfn Jónsdóttir og dóttir hans Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, komu nýlega og gáfu heimilinu þennan yndislega gleðigjafa sem malar og mjálmar. Það er búið að gefa honum nafnið Keli og við hlökkum mikið til að njóta samveru hans. Við færum mæðgunum hjartans þakkir.